Enski boltinn

Southgate ætlar sér að fá Smith

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Alan Smith heillar Southgate.
Alan Smith heillar Southgate. NordicPhotos/GettyImages

Gareth Southgate, framkvæmdastjóri Middlesbrough, ætlar að gera tilraun til að klófesta framherjann Alan Smith þegar hann kemur heim úr æfingaferð Manchester United í Asíu. Sir Alex Ferguson hefur gefið sterklega í skyn að leikmaðurinn muni yfirgefa United í sumar og það gefur Southgate von.

„Við fylgjumst mikið með Alan Smith. Það er ljóst að framtíð hans hjá United sé í óvissu. Hann er góður leikmaður og með sýnir oft frábæran karakter," sagði Southgate. „Við höfum mikinn áhuga á Smith. Ástandið breytist stöðugt en ef hann vill koma ætlum við okkur að fá hann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×