Erlent

Michael Rasmussen rekinn úr Tour De France

Fremsti maður í Tour De France hjólreiðunum, Daninn Michael Rasmussen, hefur verið rekinn úr liði sínu og keppninni. Þetta var gert þegar upp komst um að hann hefði logið því að hann hefði verið staddur í Mexíkó þegar hann átti að mæta í lyfjapróf í Evrópu í júní. Tvö lið hafa nú þegar dregið sig úr keppninni eftir að liðsmenn þeirra féllu á lyfjaprófi. Búist við að Rassmussen myndi sigra í keppninni, sem lýkur eftir fjóra daga, en hann hafði mikið forskot á Alberto Contador, sem var í öðru sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×