Erlent

Dönsku fórnarlambi mannræningja sleppt vegna réttra trúarbragða

Dönskum blaðamanni sem var rænt fyrir tveimur vikum síðan í Kunar sýslu í Afganistan var sleppt stuttu síðar þegar mannræningjar hans komust að því að hann væri múslimi. Talibanarnir sem rændu honum töldu sig hafa þýskan blaðamann undir höndum. Maðurinn, sem er af afgönskum uppruna sagðist hafa sagt ræningum sínum að hann væri múslimi og biðist fyrir og að þeir hafi þá sleppt honum umsvifalaust. Héraðsstjórinn í Kunar sagði manninum hafa verið sleppt án skilyrða, fyrir tilstilli friðelskandi ættahöfðingja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×