Erlent

Öryggisráðstafanir á flugvöllum eru hættulegar

Auknar öryggisráðstafanir á flugvöllum vegna hryðjuverkaógnarinnar eru beinlínis hættulegar fyrir farþega. Þetta segir í skýrslu umferðarnefndar breska þingsins. Nefndin sagði að hundruða manna raðir á flugvöllum gætu verið álitleg skotmörk hryðjuverkamanna. Í skýrslunni segja öryggissérfræðingar að úr því ekki er leitað í töskum fólks áður en það fer inn í flugstöðina sé hægur leikur fyrir hryðjuverkamenn að sprengja sprengju þar inni. Skýrslan var unnin fyrir árásirnar á Glasgow flugvöll í síðasta mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×