Erlent

Enn hækkar í Thames

Vatnsborð hækkar enn í Thames ánni vestur af London og spáð er áframhaldandi mikilli rigningu á flóðasvæðunum. Flóðin í Oxford gætu versnað enn frekar og bæir eins og Reading neðar við ánna verið í hættu. Veðurstofa BBC spáir um tíu til fimmtán millimetra regni á sólarhring næstu daga. Sumarið í ár er það blautasta síðan mælingar hófust í Bretlandi fyrir 240 árum síðan. Síðustu þrjá mánuði hafa tæpir fjörtíu sentímetrar af rigningu í Englandi og Wales. Þetta er meira en tvöfalt meðaltalið sem er rúmir átján sentimetrar á sama tímabili.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×