Enski boltinn

Shepherd hættir sem stjórnarformaður Newcastle

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Freddy Shepherd hættur sem stjórnarformaður Newcastle.
Freddy Shepherd hættur sem stjórnarformaður Newcastle. NordicPhotos/GettyImages

Freddy Shepherd er hættur sem stjórnarformaður Newcastle og hefur Chris Mort tekið við starfi hans. Þetta gerist í kjölfar þess að nýjir eigendur eru tóku við liðinu fyrr í sumar. Shepherd, sem hafði verið stjórnarformaður liðsins síðan 1997, seldi sinn hlut í félaginu til St. James Holdings Limited.

„Ég er yfir mig ánægður með að vera stjórnarformaður hjá svona stórum klúbbi. Síðan ég kom hef ég fengið hlýjar móttökur frá stuðningsmönnum liðsins," sagði Mort.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×