Erlent

Verkamannaflokkurinn vinnur varnarsigur í aukakosningum

David Cameron, leiðtogi íhaldsflokksins.
David Cameron, leiðtogi íhaldsflokksins. MYND/AFP

Breski Verkamannaflokkurinn hélt báðum þingsætum sínum í aukakosningum til þings sem haldnar voru tveimur kjördæmum í Bretlandi í gær. Fylgi flokksins dalaði þó nokkuð frá síðustu kosningum.

Niðurstöðurnar þykja áfalla fyrir David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins, en frambjóðendur flokksins í kjördæmunum lentu í þriðja sæti á eftir frambjóðendum Frjálslynda demókrataflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×