Erlent

Lítill vilji fyrir friðarráðstefnu

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Hugmyndir George Bush Bandaríkjaforseta um fyrirhugaða friðarráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda hafa fengið dræmar undirtektir. Talsmaður Olmerts, forsætisráðherra Ísraela sagði í gær að ísraelsk stjórnvöld væru ekki tilbúin í viðræður um mikilvæg málefni, eins og landamæradeilur, Jerúsalem og flóttamenn. Sýrlendingar hafa einnig lýst yfir efasemdum um ráðstefnuna. Talið er að ráðstefnan verði haldin í Bandaríkjunum næsta haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×