Erlent

Tilkynnt um að Blair leiði friðarviðræður á morgun?

Allar líkur eru á því að næsta verkefni Tony Blair verði að koma á friði í Mið-Austurlöndum.
Allar líkur eru á því að næsta verkefni Tony Blair verði að koma á friði í Mið-Austurlöndum. MYND/AP

Svo gæti farið að Tony Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, verði tilnefndur sem sáttasemjari á milli stríðandi fylkinga í Mið-Austurlöndum strax á morgun. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum bandarískum embættismanni.

Embættismaðurinn sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði Reuters að málið væri langt komið og eins mætti búast við því að tilkynnt verði um nýtt hlutverk Blairs strax á morgun, sama dag og hann lætur af embætti forsætisráðherra.

Blair hefur sjálfur lýst áhuga á verkefninu en gagnrýnisraddir hafa heyrst sem segja hann of handgenginn Ísraelum og Bandaríkjamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×