Erlent

Olíufyrirtæki yfirgefa Venesúela

Tvö stærstu olíufyrirtæki heims, Conoco Philipps og Exxon Mobil, hafa hafnað samningum við stjórn Venesúela en þeir hefðu gert þeim kleyft að starfa áfram í landinu.

Hugo Chavez hinn sósíalíski og róttæki forseti landsins, hefur krafist þess að fyrirtækin gefi eftir meirihlutastjórn í verkefnum sínum. Sex olíufyritæki vinna í og við strendur Venesúela og sættu fjögur þeirra sig við tilboð Chavezar. Líklegt er að mál risanna tveggja eigi eftir að fara fyrir alþjóðadómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×