Erlent

Dökk skjöl CIA opinberuð

Michael Hayden yfirmaður CIA
Michael Hayden yfirmaður CIA MYND/AFP

Bandaríska leyniþjónustan, CIA, ætlar í næstu viku að birta skjöl um starfsemi stofnunarinnar á árunum 1950-1970. Meðal þess sem kemur fram í skjölunum er að leyniþjónustan lagði á ráðin um morð, njósnir og hleranir innanlands, mannrán og tilraunir með fólk.

Margt úr skjölunum hefur þegar litið dagsins ljós en þau eru talin gefa nákvæmari lýsingar en áður hefur komið fram. Michael Hayden, yfirmaður CIA, sagðist ekki stoltur af skjölunum en að þau væri hluti af sögu leyniþjónustunnar.

"Skjölin sýna amerísku þjóðinni hvað hefur verið gert í þeirra nafni," sagði Hayden á fundi fyrr í dag. Hann sagði skjölin, sem eru kölluð Fjölskyldugimsteinar, sýna "glefsur frá fyrri tímum og lýsa mjög ólíkri stofnun en þeirri sem starfrækt er í dag".

Skjölin eru 693 talsins og voru tekin saman að beiðni James Schlesinger sem stjórnaði leyniþjónustunni árið 1973.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×