Erlent

Fyrsti fundur ríkjanna í þrjátíu ár

Bandaríkjamenn og Íranir sitja nú á fundi í Írak til að ræða um málefni Íraks. Þetta er í fyrsta skipti í þrjá áratugi sem þjóðirnar hittast í tvíhliða viðræðum. Erindrekar ríkjanna í Írak, þeir Ryan Crocker og Hassan Kazemi Qomi hittust fyrir stundu á heimili íraska forsætisráðherrans, Nouri Maliki.

Búist er við því að Bandaríkjamenn ásaki Írana um stuðning við uppreisnarmenn í Írak en Íranir munu líklega minnast á njósnahringinn sem þeir segjast hafa upprætt í Íran og á að vera undir stjórn Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×