Erlent

Mótmælt á götum Caracas

MYND/AFP
Tugþúsundir íbúa Venesúela þustu út á götur höfuðborgarinnar Caracas í gær til að mótmæla lokun sjónvarpsstöðvar sem gagnrýnt hafði ríkisstjórn Hugos Chavez. RCTV-stöðin hafði sent út dagskrá sína í 53 ár en þegar kom að því að endurnýja leyfi hennar á dögunum var því synjað.

 

Skýringarnar sem stjórnvöld gáfu voru að stjórnendur stöðvarinnar hefði tekið þátt í valdaránstilraun gegn Chavez árið 2002. Í fyrradag gerði herinn hluta af tækjum sjónvarpsstöðvarinnar upptækan og í gær flutti Chavez ávarp þar sem hann varaði pólitíska andstæðinga sína við að kynda undir ólgu í landinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×