Erlent

Þingmönnum mistekst að koma í veg fyrir synjun Bush

MYND/AFP

Þingmönnum í fulltrúadeild bandaríska þingsins mistókst í dag að koma í veg fyrir að Bush forseti beiti neitunarvaldi sínu gegn frumvarpi þingsins sem varðaði aukafjáveitingu til stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. Frumvarpið hefði bundið aukafjárveitinguna við brottför hermanna frá Írak.

 

Forsetinn beitti neitunarvaldi sínu í fyrrinótt og í dag mistókst andstæðingum forsetans í málinu að ná auknum meirihluta í kosningu sem hefði þýtt að frumvarpið yrði að lögum þrátt fyrir andstöðu forsetans. 203 þingmenn voru meðfylgjandi því að hunsa forsetann en 222 voru á móti því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×