Enski boltinn

Benitez vill gera betur í deildinni

NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir gríðarlega mikilvægt fyrir félagið að ná góðum árangri í Meistaradeildinni, en segir tíma til kominn að veita Manchester United og Chelsea meiri samkeppni í ensku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili.

"Það er gríðarlega mikilvægt að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en við ætlum að láta finna meira fyrir okkur í deildinni á næsta tímabili. Deildin er samt gríðarlega erfið og ef við ætlum að vera með í baráttunni um titilinn við United og Chelsea - verðum við að eiga nánast fullkomna leiktíð því þessi lið vinna nánast hvern einasta leik," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×