Erlent

Bin Laden sagður skipuleggja árásir í Írak

Herforingi í liði Talibana í Afganistan segir að Osama Bin Laden hafi komið að skipulagningu sprengjuárásar fyrir utan Bagram flugstöðina í Afganistan í febrúar síðastliðnum þar sem skotmarkið er talið hafa verið Dick Cheney varaforseti Bandaríkjanna.

Herforinginn, Mullah Dadullah, lét þessi orð falla í viðtali á arabísku sjónvarpsstöðinni al-Jazeera. Viðtalið var birt í dag, en þess var ekki getið hvenær það var tekið upp. Dadullah sagði einnig að Bin Laden hefði tekið þátt í að skipuleggja árásir í Írak. Varaforsetinn var í tæplega tveggja kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk í febrúar síðastliðinn en 15 manns biðu bana í árásinni og 20 slösuðust. Dadullah sagði Bin Laden enn vera á lífi og hann sagði ennfremur að hann stjórnaði hryðjuverkaaðgerðum jafnt í Írak sem og í Afganistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×