Wenger: Skapið í Lehmann er vandamál 23. apríl 2007 12:42 Jens Lehmann og Dimitar Berbatov eigast við í leiknum á laugardag. MYND/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur viðurkennt að skapofsi markvarðarins Jens Lehmann sé vandamál. Lehmann fékk sitt áttunda gula spjald á tímabilinu í gær þegar hann lenti í ryskingum við Dimitar Berbatov, leikmann Tottenham. Lehmann gaf Berbatov olnbogaskot þegar þeir áttust við í einni af hornspyrnum Tottenham í leiknum og þótti hann stálheppinn að sleppa með rauða spjaldið. Svo virðist sem að Wenger sé orðinn þreyttur á tilburðum þýska markvarðarins, og má leiða að því líkur að skapvonska hans sé ein helsta ástæðan fyrir því að honum skuli ekki hafa verið boðinn nýr samningur við félagið. "Þetta er vandamál. Í hornspyrnum tel ég sérstaklega mikilvægt að tefja ekki leikinn of mikið því þá minnkar einbeiting leikmanna. Ég talaði við línuvörðinn og hann sagði mér að Lehmann hefði sett olnbogann í Berbatov. Auðvitað á hann ekki að gera það," segir Wenger. Wenger varði þó einnig markvörð sinn og sagði hann ekki njóta eins mikillar verndar og aðrir markmenn í úrvalsdeildinni. "Ég veit ekki af hverju svo er en stundum finnst mér eins og dómurum sé í nöp við hann. Leikmenn andstæðingsins traðka á löppunum á honum en enginn tekur eftir því. En Lehmann tekur eftir því og tekur það inn á sig. Stundum bregst hann rangt við, vissulega, en mér finnst hann ekki njóta sömu verndar og aðrir markmenn."
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Sjá meira