Enski boltinn

Boateng: Ég mun ekki meiða Ronaldo viljandi

Það var allt á suðupunkti síðast þegar Man. Utd. og Middlesbrough áttust við.
Það var allt á suðupunkti síðast þegar Man. Utd. og Middlesbrough áttust við. MYND/Getty

George Boateng, fyrirliði Middlesbrough, segir af og frá að leikmenn liðsins muni viljandi reyna að meiða Cristiano Ronaldo, leikmann Manchester United, þegar liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir síðasta leik liðanna fyrir um mánuði síðan lét Boateng hafa eftir sér að Ronaldo ætti eftir að lenda illa í því í framtíðinni.

Þegar liðin áttust við í bikarkeppninni í síðasta mánuði ögraði Ronaldo leikmönnum Middlesbrough með því að leika listir sínir með boltann og tefja tímann þegar skammt var eftir. James Morrison fékk rauða spjaldið fyrir glórulausa tæklingu á þeim portúgalska og eftir leikinn varði Boateng samherja sinn með því að segja að "ef leikmenn ætla að vera með slíka stæla og Ronaldo muni einhver andstæðingur meiða viðkomandi illa svo hann verður lengi frá."

Í viðtali við breska fjölmiðla í gær sagði Boateng að orð sín hafi verið slitin úr samhengi. "Allt sem ég sagði var að það sem kom fyrir Ronaldo í þessum leik var ekki gott. Hann hefði getað meiðst illa og það yrði mikil synd fyrir Man. Utd. að missa leikmenn sem slíka hæfileika," sagði Boateng og neitar með öllu að hann hyggist meiða Ronaldo á eftir. "Ég er ekki leikmaður sem segir svona. Ég hef aldrei sparkað viljandi í andstæðing," sagði hann.

Alex Ferguson, stjóri Man. Utd. er samt sem áður hinn áhyggjufullasti. "Ég óttast það versta. Það eru mikilvægir leikir framundan og Middlesbrough mun ekki gera okkur neina greiða. Ronaldo er mikið í umræðunni og ég held að þeir verði mjög harðir í sínum leik," segir Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×