David Dein hættur hjá Arsenal 18. apríl 2007 17:26 David Dein hefur setið í stjórn Arsenal síðan árið 1983 AFP
David Dein, varastjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins Arsenal, hætti störfum hjá félaginu í dag. Félagið hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem fram kemur að þessi ráðstöfun tengist ekki fyrirhuguðu yfirtökutilboði ameríska auðjöfursins Stan Kroenke í félagið. Dein hefur verið áberandi í enskri knattspyrnu síðan hann tók sæti í stjórn Arsenal árið 1983, en nú hefur félagið tilkynnt að hann sé hættur störfum. Hann tók nýlega við stjórnarformennsku í G-14, félagi valdamestu knattspyrnufélaga Evrópu. "Við viljum þakka Dein fyrir frábær störf fyrir félagið og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni. Hann hefur reynst félaginu vel þann tíma sem hann hefur þjónað því og okkur þykir miður að ekki reyndist mögulegt að leysa ágreining sem var milli hans og annara stjórnarmanna," sagði í yfirlýsingu frá félaginu. "Stjórnin vill taka það fram að brotthvarf Dein tengist á engan hátt þeim orðrómi sem verið hefur á kreiki um að erlendir fjárfestar séu að undirbúa yfirtökutilboð í félagið, en Kroenke Sports Enterprises keypti nýlega 11% hlut í félaginu. Sitjandi stjórnarmenn í félaginu eiga 45,45% hlut í félaginu og hafa þeir ákveðið að selja hann ekki á næsta ári í það minnsta."
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira