United hrökk í gang í síðari hálfleik 31. mars 2007 15:59 Park var á skotskónum hjá United í dag NordicPhotos/GettyImages
Manchester United heldur stöðu sinni á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið burstaði Blackburn 4-1 í dag eftir að hafa verið undir á heimavelli í hálfleik. West Ham vann gríðarlega mikilvægan sigur á Middlesbrough á heimavelli 2-0 og Hermann Hreiðarsson fiskaði vítaspyrnu sem tryggði Charlton mikivæg 3 stig í botnbaráttunni. Matt Derbyshire kom Blackburn yfir 1-0 gegn United í dag en í síðari hálfleik opnaðist fyrir allar flóðgáttir og heimamenn settu fjögur mörk. Scholes, Park, Carrick og Solskjær skoruðu mörk United. Bobby Zamora og Carlos Tevez tryggðu West Ham mikilvæg stig í fallbaráttunni þegar þeir skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik í sigrinum á Middlesbrough. David James náði ekki að slá met David Seaman yfir að halda marki sínu hreinu þegar hann fékk á sig mark á lokamínútunni í 1-1 jafntefli Fulham og Portsmouth. James og Seaman hafa báðir haldið hreinu í 141 leik í úrvalsdeildinni en James verður að bíða lengur eftir að slá met Arsenal markvarðarins fyrrverandi. Manchester City vann mikilvægan sigur á Newcastle á útivelli 1-0 með marki frá Emil Mpenza á 80. mínútu. Bolton lagði Sheffield United með marki Kevin Davies á 80. mínútu og þá vann Charlton dýrmætan 1-0 sigur á Wigan með marki Darren Bent úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Hermann Hreiðarsson var í liði Charlton í dag, þrátt fyrir meiðsli og fiskaði vítið sem réði úrslitum. Sigur Charlton í dag þýðir að nú er liðið aðeins einu stigi frá því að ná Sheffield United sem situr í 17. sætinu í deildinni - sætinu sem bjargar liðunum frá falli. West Ham fór í 26 stig og er því fimm stigum frá öruggu sæti en Watford er nær örugglega fallið með aðeins 20 stig. Manchester United hefur 78 stig á toppi deildarinnar og Chelsea er í öðru með 69 stig og á leik til góða gegn botnliði Watford í dag.
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Fleiri fréttir Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sjá meira