Erlent

Hollywood-skiltið í hættu

Slökkviliðsþyrla sveimar yfir skiltinu
Slökkviliðsþyrla sveimar yfir skiltinu Getty Images

Minnstu mátti muna að Hollywood-skiltið fræga í Los Angeles í Bandaríkjunum yrði skógareldum að bráð í nótt en með snarræði slökkviliðsmanna tókst að forða því frá eyðileggingu. Tveir unglingspiltar gáfu sig í gærkvöld fram við lögregluna og sögðust hafa kveikt eld í sprekum á hæðunum fyrir ofan borgina sem síðan breiddist út.

Eldtungurnar voru um fjögur hundruð metra frá skiltinu þegar skyndilega tók að draga úr krafti bálsins. Skemmdir af völdum þess eru hverfandi en pörupiltarnir voru engu að síður færðir í fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×