Erlent

Sex fórust í flugskeytaárás eþíópískra hermanna á markað í Mogadishu

Oddur Ástráðsson skrifar
AFP

Eþíópískar herþyrlur skutu flugskeytum á markað nærri bækistöðvum uppreisnarmanna í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í morgun. Átök brutust út í kjölfarið og skutu uppreisnarmenn flugskeytum að þyrlunum og enn standa bardagar. Minnst sex hafa farist í átökum morgunsins, þar af einhverjir óbreyttir borgarar.

Eþíópískir hermenn eru í landinu til að aðstoða stjórnarherinn í baráttunni við uppreisnarmennina. Flugskeytaárásin í morgun er að sögn talsmanns stjórnarinnar í Mogadishu upphafið að þriggja daga leiftursókn gegn uppreisnarmönnum sem ætlað er að koma á stöðugleika.

Sameinuðu þjóðirnar segja minnst 40 þúsund íbúa Mogadishu hafa flúið síðan í febrúar vegna átaka þar síðustu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×