Enski boltinn

Rossi vill klára samninginn hjá Man Utd

Giuseppe Rossi
Giuseppe Rossi AFP

Ítalski framherjinn Giuseppe Rossi hjá Manchester United segist vilja klára samning sinn við félagið þrátt fyrir að hafa verið í láni í allan vetur. Hann fékk lítið sem ekkert að spila með Newcastle þar sem hann var í láni fram að áramótum og er nú að gera góða hluti með Parma í heimalandinu.

"Samningur minn við United rennur ekki út fyrr en árið 2010 og ég reikna með því að klára hann. Það er mikilvægt fyrir unga leikmenn að fá tækifæri til að spila og það er ég að fá hjá Parma núna," sagði hinn tvítugi Rossi.

"Það var fín reynsla að fara til Newcastle þó ég hafi ekki spilað mikið, því maður getur alltaf lært eitthvað af því að fara annað sem lánsmaður," sagði framherjinn sem hefur skorað þrjú mörk fyrir lið Claudio Ranieri á Ítalíu. Parma er sem stendur í mikilli fallhættu í ítölsku A-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×