Erlent

Sex fórust í sjálfsmorðsárás tígra

AFP

Minnst sex fórust í sjálfsmorðssprengjuárás sem Tamíl -tígrar gerðu á herstöð á austurhluta Sri Lanka í gærkvöldi. Uppreisnarmaður ók dráttarvél hlaðinni sprengiefnum að herstöðinni og sprengdi hana í loft upp við hliðið. Tveir hermenn og fjórir borgarar fórust. Í fyrrakvöld gerðu Tamílar loftárás á herflugvöllinn í Colombo og þá fórust þrír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×