Erlent

Vill borga konum til að sleppa fóstureyðingum

Þingmaður repúblikana á ríkisþinginu í Texas hefur lagt til að konum verði boðnir 500 dollarar ef þær hætta við að fara í fóstureyðingu. Hann segir upphæðina til þess fallna að margar konur ákveði frekar að eiga börnin. 75 þúsund fóstureyðingar voru framkvæmdar í Texas á síðasta ári. Þingmaðurinn segir að ef 5 prósent þeirra kvenna sem annars færu í fóstureyðingu hætti við vegna peninganna séu það 3000 líf sem hægt væri að bjarga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×