Erlent

Solana vill ræða við Írani

Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins vill láta reyna á að taka enn upp samningaviðræður um kjarnorkumál við Íran. Í gær samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna frekari viðskiptaþvinganir á Íran vegna kjarnorkumála.

Solana sagðist mundu hafa samband við Ali Larijani, aðalsamningamann Íransstjórnar í kjarnorkumálum og skipuleggja samningaviðræður með honum.

Íranir hafa fordæmt ákvörðun Öryggisráðsins um efnahagsþvinganir og sagt að þrýstingur og hótanir muni ekki draga úr staðfestu Írana að framleiða kjarnorku, sem þeir segja til friðsamlegra nota engöngu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×