Enski boltinn

Pearce vill meiri aura

NordicPhotos/GettyImages
Stuart Pearce stjóri Manchester City hefur kallað á stjórn félagsins að dæla meiri peningum í liðið svo það geti verið samkeppnishæft í ensku úrvalsdeildinni. Gengi liðsins hefur valdið vonbrigðum í vetur og er það í fallbaráttu.

"Ég segi bara það sama og ég sagði fyrir tveimur árum. Það er fínn efniviður í þessu liði en við þurfum að fá þrjá til fjóra sterka leikmenn til að byggja upp lið sem getur gert stuðningsmenn okkar stolta og verið samkeppnishæft," sagði Pearce.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×