Erlent

Kjarnorkuviðræður að leysast upp

Sex ríkja viðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu virðast vera að leysast upp. Aðalasamningamenn þeirra hafa yfirgefið fundinn í Peking og eru á leið heim án þess að sátt hafi náðst um peninga sem Norður-Kóreumenn eiga á bankareikningi í Macau, en höfðu verið frystir. Til hefur staðið að millifæra peninganna til þeirra aftur en það hefur tafist án þess að fengist hafi á því viðunandi skýringar. Til stóð að Norður-Kóreumenn slökktu á kjarnaofni sínum í Yongban um miðjan næsta mánuð, um það náðist samkomulag í byrjun febrúar, en þær áætlanir eru nú í uppnámi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×