Erlent

Stjórnarflokkar með sterka stöðu

AP

Útgönguspár benda til þess að flokkur Vladímír Pútín Rússlandsforseta, „Sameinað Rússland" hafi unnið sigur í 10 af 14 héröðum í sveitarstjórnarkosningum. Þær eru taldar gefa góða vísbendingu um útkomuna í komandi forseta- og þingkosningum sem fyrirhugaðar eru á næsta ári. Þá er búist við því að Pútín hætti sem forseti en hann hefur sagt að hann muni ekki sérstaklega útnefna eftirmann sinn. Stjórnarandstöðuflokkar segja útgönguspárnar vitlausar og kalla þær löglausa vitleysu sem hafi verið kokkuð upp af spunameisturum ríkisstjórnarinnar. Kosið var í 14 af 86 héröðum landsins, samtals búa í þeim um þriðjungur kosningabærra manna Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×