Erlent

Íransforseti vill áheyrn öryggisráðs

Mahmoud Ahmendinejad forseti Íran
Mahmoud Ahmendinejad forseti Íran AP

Íransforseti vill áheyrn öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem hann vill verja kjarnorkuáætlanir landsins, því lýsti hann yfir í gær. Vesturveldin hafa haldið því fram að Íranir ætli sér að framleiða kjarnorkuvopn en því hefur forsetinn vísað alfarið á bug. Sendiherra Kína hjá Sameinuðu þjóðunum sagði eftir ummælin að auðvitað væri Íransforseta velkomið að fá áheyrn öryggisráðsins, líkt og öllum öðrum meðlimum Saminuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×