Erlent

Baradei á leið til Norður-Kóreu

AP

Mohamad El Baradei yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar er nú í Kína á leið sinni til Norður-Kóreu þar sem hann ætlar að ræða við stjórnvöld um að láta af kjarnorkuáætlunum í skiptum fyrir efnahagsaðstoð, líkt og samið var um í sex ríkja viðræðum í byrjun febrúar.

Baradei segir að þegar Norður-Kórea hefði slökkt á kjarnaofnum og eytt kjarnavopnum taki tíma að byggja á ný upp stjórnmálatengsl við landið. Lykilstund í afvopnun Norður-Kóreu verður eftir um mánuð þegar áætlað er að slökkva á kjarnorkuverinu í Yongbyon. Þetta er fyrsta heimsókn eftirlitsmanns Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar til landsins í fimm ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×