Erlent

Skoðanir Hirohito afhjúpaðar

Hirohito skoðar skemmdir í Tokyo árið 1943 eftir loftárásir Bandaríkjanna
Hirohito skoðar skemmdir í Tokyo árið 1943 eftir loftárásir Bandaríkjanna Getty Images

Hirohito fyrrverandi Japanskeisari hafði miklar efasemdir um að fara í stríð við Kína á fjórða áratug síðustu aldar. Þetta kemur fram í dagbók eins ráðgjafa hans sem var afhjúpuð í dag. Í dagbókinni kemur fram að Hirohito óttaðist vald Sovíetríkjanna og að þau mundu skerast í leikinn.

Einungis kaflar úr dagbókinni hafa verið sýndir fjölmiðlum. Þegar dagbókin verður birt í heild sinni gæti það varpað nokkru ljósi á hversu mikla ábyrgð keisarinn bar raunverulega á stríðsrekstri Japana fyrir og í síðari heimsstyrjöldinni.

Dagbókin er rúmlega 600 blaðsíður að lengd og þar skrásetti Kuraji Ogura ráðgjafi keisarans hugsanir sínar og reynslu árin 1939-1945. Hirohito talaði aldrei opinberlega til japanskra þegna sinna fyrr en eftir að Japanir gáfust upp árið 1945. Dagbókin gæti því varpað athyglisverðu ljósi á skoðanir hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×