Erlent

Átta milljörðum ríkari eftir lottó

Nabors með stóran tékka
Nabors með stóran tékka AP

52 ára vörubílsstjóri frá Georgíuríki í Bandaríkjunum er skyndilega orðinn margmilljóner. Hann var annar tveggja vinningshafa í stærsta lottói sögunnar í Bandaríkjunum. Vörubílsstjórinn, Ed Nabors sagði við blaðamenn að hann væri enn dofinn og að hann trúði vart að þetta væri satt en hann er heilum 116 milljónum dala ríkari sem jafngildir næstum átta milljörðum íslenskra króna - munar um minna.

Nabors var við vinnu á vörubíl sínum þegar hann bar saman lottómiðann sinn og tölurnar í dagblaðinu. Hann segist ætla að nota vinningsféð til að fara á fiskerí og kaupa hús handa dóttur sinni. Sennilega getur hann nú gert sitthvað fleira við aurana.

Annar heppinn miðaeigandi sem deilir vinningnum með Nabors hefur enn ekki gefið sig fram en stærsti vinningshafinn er þó bandaríski ríkiskassinn sem tekur rúman þriðjung vinningsupphæðarinnar í skatt, alls heilar 130 milljónir bandaríkjadala.

Lottóæði greip um sig meðal Bandaríkjamanna vegna þess hve há vinningsupphæðin var og þegar best lét seldust milljón miðar á klukkutíma í New York-borg einni saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×