Erlent

Danskir bankar harðlega gagnrýndir

Danskir bankar fitna eins og púkinn á fjósbitanum á allskonar gjöldum fyrir allar mögulegar og ómögulegar hreyfingar á bankareikningum viðskitpavininna, án þess að þeir hafi hugmynd um , eða geti átað sig á því. Þetta segir Mette Gjerskov talsmaður neytenda í danska jafnaðarmannaflokknum í viðtali við Jótlandspóstinn. Hún segir að ýmiskonar dulin gjaldtaka bankanna hafi aukist um fimm og hálfan milljarð danskra kóna á tveimur árum, þrátt fyrir að bönkunum hafi verið bannað á tímabilinu að taka 50 aura þóknun af hverri færslu á Dankoritnu, svonefnda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×