Erlent

Óeirðir verðmæt auglýsing

Mynd/Teitur

Danskur auglýsingasölumaður segir óeirðirnar á Norðurbrú öflugri kynningu fyrir Danmörku en MTV-tónlistarhátíðin sem haldin var í Kaupmannahöfn í liðnum nóvember. Flestar stærstu fréttastöðvar heims fjölluðu um óeirðirnar, þeirra á meðal CNN, BBC News og Al-Jazeera. Auglýsingasölumaðurinn, Frederik Preisler segir að þessi umfjöllun muni auka straum ferðamanna til Kaupmannahafnar, að þegar augu umheimsins hafi beinst að borginni átti fólk sig á því hvar og hvað Kaupmannahöfn er.

Það var reiknað út að auglýsingin sem Kaupmannahafnarborg fékk út á MTV-hátíðina hafi verið 350 milljóna danskra króna virði og segir Preisler að auglýsingin út á óeirðirnar muni að líkindum reiknast enn verðmætari. Því sé 14 milljónum danskra króna sem verja þarf í viðgerðir eftir óeirðirnar vel varið. Einnig má búast við því að þeir innan ferðamannaiðnaðarins sem kvörtuðu undan afpöntunum á meðan á óeirðunum stóð fái það margfalt til baka. Sannast því enn hið fornkveðna að slæm umfjöllun er betri en engin umfjöllun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×