Erlent

Færri fórust en fyrst var talið

Nú er ljóst að það voru 22 sem fórust í flugslysinu í Indónesíu, ekki 49 eins og fyrst var talið. 118 lifðu slysið af en margir þeirra eru sárir. Forseti Indónesíu hefur þegar fyrirskipað rannsókn á því hvað olli slysinu. Það kviknaði í Boeing 737-400 þotu Garuda-ríkisflugfélagsins þegar hún lenti á flugvellinum í Yogyakarta á Jövu í morgun. Líklegast er talið að þotan hafi verið á of miklum hraða þegar hún lenti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×