Erlent

Bara framhliðin eftir

Niðurrifi Ungdomshússins á Norðurbrú í Kaupmannahöfn er nær lokið. Síðustu múrsteinarnir voru rifnir af grunninum rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og aðeins stendur eftir framhlið hússins. Nokkur fjöldi mótmælenda var á ferli fram á nótt en mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram. Þó voru sjö ungmenni á aldrinum 16 til 17 ára handtekin undir morgun fyrir að hafa kveikt í bíl þegar mótmælin stóðu sem hæst. Þau dúsa nú í fangageymslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×