Erlent

120 myrtir á leið á trúarhátíð

AP

Uppreisnarmenn réðust að sjíta-pílagrímum með byssum og sprengjum þar sem pílagrímarnir voru á leið á trúarhátíð í hinni helgu borg Kerbala í morgun. Minnst fimm fórust og tíu að auki særðust í árásinni. Í gær fórust 115 í sprengjuárásum í Írak á leið sinni á trúarhátíðina. Talið er að árásarmennirnir séu súnníar en stjórnmálaskýrendur óttast að árásirnar muni vera olía á deilueld trúarhópanna tveggja en átökum þeirra hefur verið lýst sem borgarastyrjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×