Erlent

Mannskætt flugslys í Indónesíu

AP

Minnst 49 fórust þegar kviknaði í indónesískri farþegaþotu við lendingu í Yogyakarta á Jövu í nótt.

Tugir náðu að komast frá borði og enn er einhverra leitað í flaki flugvélarinnar. Alls voru 140 í flugvélinni þegar eldurinn kom upp þar af 133 farþegar. Fjöldi farþeganna voru ástralskir stjórnarerindrekar sem höfðu verið á ferðalagi með utanríkisráðherra Ástralíu í opinberri heimsókn í landinu.

Utanríkisráðherrann, Alexander Downer sagði við fréttamenn í morgun að níu Ástralir hafi verið um borð í þotunni, fimm höfðu komist lífs af en fjögurra væri enn saknað. Ekki er vitað hvað olli slysinu en þotan er af gerðinni Boeing 737-400.

Ekkert bendir til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða og sagði einn flugslysasérfræðingur í morgun að líklegast hafði þotan verið á of miklum hraða þegar nefhjólið skall á flugbrautinni og eldurinn kviknað út frá því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×