Pétur Blöndal baðst afsökunar á Alþingi 1. mars 2007 18:58
Þess var krafist á Alþingi í morgun að Pétur Blöndal yrði víttur fyrir að líkja Þórarni Tyrfingssyni, yfirlækni SÁÁ, við Guðmund í Byrginu. Til þess kom þó ekki enda baðst Pétur sjálfur afsökunar á ummælunum. Þingmenn gagnrýndu að Pétur skyldi líkja saman Byrginu og SÁÁ þegar hann sagði að hjá SÁÁ væri einn og sami maðurinn yfirlæknir, formaður framkvæmdastjórnar og stjórnarformaður og uppfylli þannig öll sömu skilyrði og voru hjá Byrginu. Þeir sem gerðu samning við ríkið, eins og SÁÁ, megi ekki taka sér fjárveitingavald með því að krefjast meira en fjárlög gera ráð fyrir og víkka út reksturinn, eins og gert hafi verið. Það þyrfti að gera kröfur til þeirra sem geri samninga við ríkið. Steingrímur J Sigfússon formaður Vinstri Grænna sagði samlíkingu Péturs Blöndal algerlega út úr öllu korti við þær aðstæður sem nú væru uppi. Hann vildi að þingforseti stöðvaði það að ræðustóll Alþingis væri notaður til að vega að fjarstöddum mönnum sem ekki gætu borið hönd fyrir höfuð sér og hvetti Pétur til að draga ummælin til baka. Össur Skarphéðinsson sagði að þingforseti hefði átt að víta þingmanninn sem leyfði sér að draga samasemmerki milli forstöðumanns stofnunar sem hefur orðið uppvís að meintum glæpum og hins ágæta forstöðumanns SÁÁ með sunnsöfnuði og orðavaðli af þessu tagi. Össur krafðist þess að Pétur bæðist afsökunar. Pétur sagðist hafa verið að benda á galla sem hann teldi vera í stjórnskipun SÁÁ og því miður hafi sér orðið á að bera það saman við Byrgið, og hafi hann meitt einhvern þá vildi hann endilega biðjast afsökunar á því.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira