Erlent

Segir flensuna ekki komna frá Ungverjalandi

AP

Fuglaflensusmitið sem upp kom á kalkúnabúi Bernard Matthews í Suffolk á Englandi í síðustu viku er ekki komið frá Ungverjalandi. Þetta fullyrðir Andreas Dekany talsmaður landbúnaðarráðuneytisins í Ungverjalandi.

Bresk stjórnvöld rannsaka nú hvernig smitið barst til Suffolk og hefur kenningin um að það hafi komið frá gæsabúi Bernard Matthews í Ungverjalandi, þar sem fuglaflensa greindist í janúar, verið lífseig.

Bernard Matthews neitaði upphaflega að það væri mögulegt að smitið hefði komið frá Ungverjalandi en viðrkenndi svo að afurðir hefðu verið fluttar frá Ungverjalandi til Suffolk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×