Varfærin viðbrögð við samkomulagi í Palestínu 9. febrúar 2007 13:00 Samningnum fagnað í Gasaborg í gær. MYND/AP
Viðbrögðin við samkomulagi stríðandi fylkinga í Palestínu um myndun þjóðstjórnar hafa víðast hvar verið varfærin. Hamas fær samkvæmt því flest ráðuneyti í stjórninni í sinn hlut en ekkert er þar kveðið á um stöðu Ísraels. Til átaka kom í Jerúsalem í morgun á milli ísraelskra lögreglumanna og Palestínumanna. Það stóðst sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu og leiðtogi Fatah, sagði fyrir fund sinn með oddvitum Hamas Mekka í Sádi-Arabíu um að ekki yrði staðið upp frá samningaborðinu fyrir en samkomulag um þjóðstjórn lægi fyrir. Vonast er til að með því hafi endi verið verið bundinn á átök fylkinganna sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Í samkomulaginu er kveðið á um að Hamas fái níu ráðuneyti í sinn hlut í nýju stjórninni, Fatah sex og fjórir ráðherrar tilheyra öðrum smærri hreyfingum. Hamas-maðurinn Ismail Haniyeh verður áfram forsætisráðherra en ráðherrar innanríkis-, utanríkis- og fjármála- koma úr röðum óháðra. Tilveruréttur Ísraelsríkis er hins vegar ekki viðurkenndur sérstaklega í samkomulaginu og sú staðreynd skýrir hversu hófstillt viðbrögðin við því hafa verið. Talsmenn bandarískra stjórnvalda og Evrópusambandsins telja of snemmt að segja hvort samkomulagið þýði að styrkgreiðslur til heimastjórnarinnar verði teknar upp á ný og Ísraela er varla hægt að skilja öðru vísi en að ekkert hafi breyst að þeirra mati. Mikill fögnuður greip um sig á Gaza þegar tíðindin frá Mekka spurðust út og sprengdu menn flugelda og hleyptu af byssum í gleði sinni. Í morgun syrti hins vegar í álinn því þá kom til átaka við al-Aqsa-moskuna í Jerúsalem á milli múslima sem voru þar við föstudagsbænir og ísraelskra lögreglusveita. Mótmælendur köstuðu steinum og flöskum að lögreglu sem svaraði með táragasi. Nokkrir hafa særst í átökunum en kveikja þeirra eru vegaframkvæmdir Ísraela á þessum ginnhelga stað.
Mest lesið Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira