Erlent

Bjartsýni um árangur viðræðna

AP

Fulltrúi Norður-Kóreu í sex ríkja viðræðum um kjarnorkumál landsins sagði í morgun að samkomulag hafi náðst við Bandaríkin varðandi einhver mál, önnur væru óleyst en áfram yrði samið. Í dag er annar dagur sex ríkja viðræðna um kjarnorkumál Norður-Kóreu sem fram fara í Peking í Kína.

 Suður-Kóreskir erindrekar sögðust í gær bjartsýnir um árangur viðræðanna, að fyrsta uppkast að samkomulagi á milli þjóðanna sex gæfi ástæðu til þess. Suður- og Norður-Kórea, Kína, Japan, Rússland og Bandaríkin eiga aðild að viðræðunum sem miða að því að Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×