Erlent

Óöld í Acapulco

AP

Sjö lögreglumenn féllu í árás byssumanna á ferðamannaborgina Acopulco í Mexíkó í gærkvöldi. Fjöldi fólks þar að auki særðist í árásinni. Byssumennirnir réðust á sitthvora lögregluvarðstöðina. Talið er að byssumennirnir hafi verið á vegum eiturlyfjahringa en Felipe Calderon forseti Mexíkó sendi nýverið 24 þúsund lögreglumenn og hermenn til borgarinnar til að koma böndum á eiturlyfjasmygl og ræktun í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×