Erlent

200 kílómetra trjágöng

Yfirvöld í Portúgal hafa ákveðið að ryðja 200 kílómetra löng og þriggja kílómetra breið göng í skógum sínum til þess að reyna að stöðva útbreiðslu illvígs trjáorms sem fyrst varð vart við árið 1999. Ormurinn fjölgar sér í bolum trjánna og drepur þau með því að hindra að þau nái í vatn.

Byrjað verður að ryðja skógana í næstu viku og vonast er til að verkinu verði lokið 31. mars. Með því að ryðja þessi miklu göng er vonast til að loka orminn inni á eins milljón hektara svæði og koma í veg fyrir að hann breiðist frekar út um Portúgal, eða til nágrannalandanna. Þessi ormategund hefur ekki fundist í öðru Evrópulandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×