Erlent

Sprengdi sig í bakaríi í Ísrael

Sjálfsmorðssprengjuárás varð í það minnsta þremur að bana, auk árásarmannsins, í bakaríi í strandbænum Eilat á Rauðahafsströnd Ísraels rétt fyrir klukkan níu í morgun. Þetta er fyrsta sjálfsmorðssprengjuárásin í Ísrael frá því í apríl á síðasta ári.

Þrenn palestínsk skæruliðasamtök hafa lýst ábyrgð á hendur sér: Islamic Jihad, Al Aqsa sveitirnar og áður óþekkt samtök sem kalla sig Her hinna trúuðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×