Erlent

Fangar leystir úr haldi í Rúanda

Föngum sleppt.
Föngum sleppt. MYND/AP

Stjórnvöld í Rúanda ætla að leysa úr haldi átta þúsund manns sem sitja í fangelsi eða bíða dóms vegna þjóðarmorðanna árið 1994.

Tugþúsundum manna hefur áður verið sleppt úr fangelsum í tilraun stjórnvalda til að leysa vandamál yfirfullra fangelsa og reyna að skapa sátt í samfélaginu. Þessar aðgerðir eru líklegar til að valda mikilli reiði meðal þeirra sem lifðu þjóðarmorðin af.

Frá árinu 2003 hefur á bilinu fimmtíu til sextíu þúsund föngum verið sleppt úr haldi í Rúanda, áttatíu prósent þeirra sátu inni fyrir að taka þátt í þjóðarmorðunum. Talið er að um áttahundruð þúsund manns hafi látist í þjóðarmorðum Hútúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×