Erlent

Starfsmaður þingsins á kóki

Þjóðþing Dana er staðsett í Kristjánsborgarhöllinni.
Þjóðþing Dana er staðsett í Kristjánsborgarhöllinni. MYND/af netinu

Starfsmaður danska þjóðþingsins hefur verið handtekinn fyrir að hafa undir höndum örvandi fíkniefni. Dagblaðið Berlingske Tidende greindi frá því í nóvember síðastliðnum að fíkniefnaleifar hefðu fundist á þremur klósettum þinghússins í Kristjánsborgarhöll.

Starfsmaðurinn hefur játað að hafa neytt kókaíns í vinnunni og hefur honum verið vikið frá störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×