Erlent

Michael Bloomberg ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta

Michael Bloomberg borgarstjóri New York
Michael Bloomberg borgarstjóri New York MYND/AFP

Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, hefur neitað sögusögnum um að hann hyggist bjóða sig fram sem óháður í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2008. Þessi yfirlýsing kemur degi eftir að hann sagði sig úr repúblikanaflokknum og gerðist óháður.

Hann segir spekúlanta vera að sóa tíma sínum með að halda því fram að hann ætli að bjóða sig fram til forseta. Bloomberg sagðist ætla að sitja í núverandi embætti þar til kjörtímabilinu lyki árið 2009. Að því loknu hyggst hann snúa sér að mannúðarverkefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×