Erlent

Hreina loftið gerir útslagið

Enn á ný mælast Íslendingar í hópi hamingjusömustu þjóða heims. Samkvæmt evrópska hamingjukvarðanum, svonefndum Happy Planet Index, ríkir hvergi meiri hamingja í Evrópulöndum en einmitt hér á landi. Bresk dagblöð skýrðu frá þessu í gær.



Kvarðinn er byggður á þremur þáttum, nefnilega ævilengd, lífsánægju og útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Íslendingar lenda í þriðja sæti þegar spurt er um tvo fyrstu þættina, en skýtur hinum Evrópuþjóðunum ref fyrir rass og lendir í efsta sæti þegar hreina loftið hér er tekið með í reikninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×